Í október voru 34 skráðir atvinnulausir í Fjallabyggð, 17 karlar og 17 konur. Fjallabyggð mælist með mesta atvinnuleysið á Norðurlandi eystra eða 3.1 %. á Norðurlandi vestra er Skagaströnd með mesta atvinnuleysið eða um 5%.

Mest er atvinnuleysið á meðal ungs fólks á aldrinum 20 – 34 ára eða 17 manns. Eftir atvinnugreinum er atvinnuleysi mest í opinberri stjórnsýslu eða 6 manns en minnst í fræðslustarfsemi og sérfræðiþjónustu eða 1 í hvorri starfsgrein.

Hér má sjá frekari sundurliðun frá Vinnumálastofnun um atvinnuleysi í Fjallabyggð fyrir október 2018.

 

Frétt og mynd: Kristín Sigurjónsdóttir