Á vef Stjórnarráðs Íslands má finna svo kallaða Samráðsgátt. Þar gefst kostur á að tjá sig um ýmis mál. Þar er spurt:

Viltu senda inn umsögn um málið?

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er núna umræða um hvort breyta eigi klukkunni á Íslandi, þannig að hún samræmist legu landsins á hnettinum.

Hér er slóð á rafrænu innskráninguna fyrir þetta mál. 

Um Samráðsgáttina segir: “Markmið Samráðsgáttarinnar er að auka gagnsæi og möguleika almennings og hagsmunaaðila á þátttöku í stefnumótun, reglusetningu og ákvarðanatöku opinberra aðila.”

Greinargerðin „Staðartími á Íslandi – stöðumat og tillögur“ hefur verið birt í Samráðsgátt Stjórnarráðsins. Samþykkt var að setja málið í opið samráð við almenning á ríkisstjórnarfundi 21. desember sl. og verður tími samráðs tveir mánuðir.

Greinargerðin var unnin í forsætisráðuneytinu og í henni er skoðað hvort færa eigi staðartíma nær sólartíma miðað við hnattræna legu landsins. Rannsóknir sýna að nætursvefn Íslendinga er almennt séð of stuttur en slíkt getur verið heilsuspillandi og haft áhrif á námsárangur og framleiðni í atvinnulífinu. Sérstaklega er þetta áhyggjuefni vegna barna og ungmenna. Ein líkleg skýring er að klukkan sé ekki í samræmi við hnattræna legu landsins.

Almenningi, atvinnulífi og stjórnsýslu er nú boðið að taka þátt í samráði og leggja fram sín sjónarmið um stöðumat, framtíðarsýn og áhrif mögulegra breytinga. Í kjölfarið verður svo unnið úr ábendingum og stefna mótuð af hálfu stjórnvalda.

Settir eru fram eftirfarandi valkostir í greinargerðinni:

A. Óbreytt staða, klukkan er áfram 1 klst. fljótari en ef miðað væri við hnattstöðu, en með fræðslu er fólk hvatt til að ganga fyrr til náða.
B. Klukkunni seinkað um 1 klst. frá því sem nú er, í samræmi við hnattstöðu landsins (dæmi: kl. 11:00 nú, verður kl. 10:00 eftir breytingu).
C. Klukkan áfram óbreytt en skólar og jafnvel fyrirtæki og stofnanir hefja starfsemi seinna á morgnana.

Staðartími á Íslandi – stöðumat og tillögur

 

Hér má sjá skjáskot af vefsíðunni með forminu sem notað er til að senda inn umsögn.

Eins og sjá má virkar netsins forni fjandi, Internet Explorer ekki á vef Stjórnarráðsins.