Matvælastofnun varar við neyslu á Datu Puti sojasósu í 750ml flöskum vegna aðskotaefnis yfir mörkum. Matvælastofnun fékk tilkynningu í gegnum RASFF viðvörunarkerfið að fyrirtæki sem flytur sojasósu til Evrópu hafi mælt aðskotaefnið 3-MCPD yfir mörkum og látið innkalla vöruna af markaði.

Tvö fyrirtæki á Íslandi, Lagsmaður ehf. og Vietnam Market ehf., hafa flutt inn vöruna og sett á markað. Fyrirtækin hafa innkallað vöruna af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Sojasósan hefur verið til sölu í verslunum Fiska.is og Vietnam Market.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Datu Puti.
  • Vöruheiti: Soy Sauce.
  • Nettómagn: 750 ml.
  • Best fyrir: 07.04.2020, 17.03.2020, 17.09.2019, 17.10.2019, 17.11.2019.
  • Upprunaland: Filippseyjar.
  • Innflytjandi: Lagsmaður ehf., Brekkuhúsum 1, 112 Reykjavík og Vietnam Market ehf., Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Fiska.is, Nýbýlavegi 14 og Lóuhólum 2-6, og verslun Vietnam Market, Suðurlandsbraut 6.

Viðskiptavinum Fiska.is og Vietnam Market sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga. Fiska.is og Vietnam Market veita nánari upplýsingar.

Ítarefni