Björn Valdimarsson og Scott Probst opna ljósmyndasýningu í Kaffi Klöru 17. júní

Ástralski ljósmyndarinn Scott Probst, sem nú er húshaldari í Listhúsinu á Ólafsfirði og Björn Valdimarsson, halda ljósmyndasýningu í Kaffi Klöru nú í sumar.

Mynd/Björn Valdimarsson

Myndirnar voru teknar á Ólafsfirði og víðar á Norðurlandi.  Scott sýnir myndir af húsum og landslagi og Björn af fólki sem býr eða hefur starfað í Ólafsfirði.

Sýningin verður opnuð þann 17. júní kl. 17:00 og verður hún opin fram eftir sumri

Frétt og myndir: aðsent