Jólasýning Einars Mikaels töframanns í Tjarnarborg, miðvikudaginn 19. des. kl. 19:30

Einar Mikael töframaður hefur notið ómældra vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar. Á síðustu 7 árum hefur Einar Mikael ferðast víða um heim.

Jólasýning Einars Mikaels er ný sýning sem er troðfull af ótrúlegum töfrabrögðum og mögnuðum sjónhverfingum. Einar leyfir áhorfendum að taka virkan þátt í sýningunni og velur hann oftar en ekki unga áhorfendur úr sal til að aðstoða hann í töfrabrögðunum.

Nú er um að gera að nýta tækifærið og sjá Einar Mikael með öll sín bestu atriði  ásamt því verður leynigestur með Einari.

Beint eftir sýningarnar er gestum boðið uppá myndatöku með Einari og hægt er að kaupa ýmsan töfravarning eftir sýningarnar galdrabækur og töfradót.

Miðaverð er 1.500 kr. Miðarnir eru seldir við hurð.

Hér er hægt að sjá myndbrot frá sýningu með Einari Mikael
https://www.youtube.com/watch?v=EZoOaK6S_ik