Nú þegar hátíð ljóssins er á næsta leiti er ekki úr vegi að minna á mikilvægi reykskynjara og slökkvitækja.

Hvammstangabúar voru minntir heldur hressilega á það síðastliðinn þriðjudag þegar eldur kviknaði í húsi við Höfðabraut á Hvammstanga.

Ungt par býr í húsinu með lítið barn. Eldurinn kom upp á neðri hæð hússins og er talið að hann hafi kviknað út frá rafmagni í bílskúr.

Mikil mildi þykir að fólkið var heima þegar eldurinn kviknaði, en aðeins mátti muna mínútum að húsið yrði alelda. Svo varð þó ekki og tókst slökkviliði að ráða niðurlögum eldsins. Engan sakaði.

Reykskynjarar seldust upp á augabragði á Hvammstanga eftir atvikið.

Þess má geta að það er önnur “Elísadísin”, þáttagerðarmaður á FM Trölla sem býr í húsinu, Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir ásamt fjölskyldu sinni.

Elísabet sagði í samtali við Trölla: “..minna fólk að það á ekki að spara í reykskynjurum og slökkvitækjum.” Þátturinn Elísadís verður í fríi í kvöld.

.

 

.

 

.

 

.

 

.

 

Myndir: Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir