Fiskidagurinn mikli 2018 – Fréttatilkynning

  • Fjölskylduhátíð á heimsmælikvarða í blíðskaparveðri
  • Sjávarréttaveislan á laugardeginum frábær
  • Fiskasýningin gríðarlega vinsæl
  • Júlíus Kristjánsson heiðraður
  • Engin mál á borði lögreglu
  • Flugeldasýning sem að verður seint toppuð
  • Tónlistarviðburður í litlu sjávarþorpi á heimsklassa

Vináttukeðjan – Fjöldaknús.
Föstudaginn 10. ágúst var dagskrá í kirkjubrekkunni sem er nokkurskonar setningarathöfn fyrir Fiskidaginn mikla. Vináttukeðjan er hlý og notaleg stund þar sem að staldrað er við og hugað að vináttunni og náungakærleikanum. Þar er tónlistarflutningur og vinátturæðuna flutti Geir Jón Þórisson. Heimamenn færðu gestum fléttuð vináttuarmbönd, vináttufána, knúskort og í lokin var innilegt fjöldaknús til að leggja línurnar fyrir helgina og það má með sanni segja það það hafi enst út helgina.

Fiskisúpukvöldið mikla.
Á föstudagskvöldinu buðu um 130 fjölskyldur í Dalvíkurbyggð uppá fiskisúpu og vinalegheit. Hver sá sem bauð uppá súpu var með sína uppskrift. Einstaklega gott og ljúft kvöld í góðu veðri. Mikill fjöldi fólks rölti um bæinn þetta kvöld þar sem að súpa, vinátta og einstök samvera var í aðalhlutverki.

Fiskidagurinn mikli – Matseðillinn og maturinn alltaf betri og betri.
Laugardaginn 11. ágúst milli kl 11.00  og 17.00 var Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur í átjánda sinn á hafnarsvæðinu á Dalvík og einn eitt skiptið  sól og einstakri veðurblíðu. Um130.000 matarskammtar runnu ljúflega ofan í gesti Fiskidagsins mikla.  Matseðillinn var gómsætur og fjölbreyttur að vanda og það mátti heyra á mörgum gestum að hann hafi verið sá allra besti frá upphafi.  Mjög fjölbreytt dagskrá var á sviði og hátíðarsvæðinu allan daginn. Um 150 manns komu fram í frábærri og vel heppnaðri dagskrá á sviðinu og á svæðinu.

Hamarhaus á fiskasýningunni og sýningin sló svo sannarlega í gegn.
Á Fiskideginum mikla frá upphafi hefur Skarphéðinn Ásbjörnsson með hjálp góðra manna sett upp fiskasýningu. Gestafjöldinn var mikill á sýningunni og áhugi oundrun fólks leyndi sér ekki. Fyrir fiskasýninguna í ár bar vel í veiði þar sem að sýningunni barst hákarlstegundur hamarshaus/Hammerhead.

Tónleikar á heimsmælikvarða  – Óvæntur leynigestur – Glæsileg flugeldasýning.
Hátíðinni lauk síðan með Fiskidagstónleikum og flugeldasýningu í boði Samherja.  gerðinni í. Boðið var uppá einstakan tónlistarviðburð. Í farabroddi voru heimamennirnir Friðrik Ómar, Matti Matt, Eyþór Ingi. Meðal annara sem komu fram voru:  Helgi Björnsson, Jón Jónsson, Helga Möller, Eiríkur Hauksson, Katrín Halldóra, Ragnheiður Gröndal, Egill Ólafsson, Jói P og Króli, Páll Rósinkrans og svo öllum að óvörum kom Bubbi Mortheins og sló botninn í glæsilega tónleika á eftirminnilega hátt.  Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar á Dalvík setti lokapunktinn á einstaka fjölskylduhátíð.  Aldrei hafa fleiri verið samankomnir fyrir neðan kaupfélagsbakkann, mannhafið var mikið og tignarlegt.
Björgunarsveitin á Dalvík á mikið lof skilið fyrir eina bestu flugeldasýningu sem að sett hefur verið upp hér á landi, algjörlega mögnuð sýning sem að verður seint toppuð.

Júlíus Kristjánsson heiðraður á Fiskidaginn mikla 2018.
Frá upphafi hefur Fiskidagurinn mikli heiðrað þá sem hafa með einhverjum hætti haft áhrif á atvinnusögu okkar og íslenskan sjávarútveg.

Í ár veitir Fiskidagurinn mikli viðurkenningu fyrir framlag til menntunar sjómanna og heiðrar Júlíus Kristjánsson fyrir hans mikilvæga þátt í uppbyggingu og umsjón með  skipstjórnarfræðslu á Dalvík.

Á áttunda áratug síðustu aldar hóf Júlíus að kenna nemendum við Gagnfræðaskóla Dalvíkur skipstjórnarfræði og meðferð veiðarfæra.

Árið 1981 heimilaði menntamálaráðuneytið að starfrækt yrði skipstjórnarbraut við Dalvíkurskóla og var forsenda þess að Júlíus Kristjánsson hefði umsjón með deildinni. Stýrimannaskólinn á Dalvík naut mikilla vinsælda strax frá upphafi og árið 1987 heimilaði ráðuneytið að kennsla færi einnig af stað á 2. stigi skipstjórnarnáms.

Í þau um 20 ár sem stýrimannaskólinn starfaði á Dalvík hafði Júlíus umsjón með náminu, en á þeim tíma útskrifuðust 190 nemendur af 1. stigi skipstjórnar og 134 með 2. stig frá skólanum. Margir þeirra eru farsælir skipstjórnarmenn í dag.

Fréttatilkynning: aðsend
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir