Í dag miðvikudaginn 4. júlí undirrituðu fulltrúar fjögurra aðila samvinnusamning sem snýr að flokkun á rusli sem til fellur á Fiskideginum mikla. Undirritunin fór fram í Bögg skógarreit rétt ofan Dalvíkur.

Í dag miðvikudaginn 4. júlí undirrituðu fulltrúar fjögurra aðila samvinnusamning sem snýr að flokkun á rusli sem til fellur á Fiskideginum mikla. Undirritunin fór fram í Bögg skógarreit rétt ofan Dalvíkur.

Undanfarið hafa stjórnendur Fiskidagsins mikla unnið að því að skipuleggja flokkun á rusli sem fellur til á fjölskylduhátíðinni Fiskidagurinn mikli. Í ár verður skrefið tekið lengra með samvinnu fjögurra aðila, Samáls samtaka álframleiðenda, Sæplasts, Gámaþjónustu norðurlands og Fiskidagsins mikla. Stefnt er að því að flokka álpappír, plast og almennt sorp ásamt því að dósir og plastflöskur eru flokkaðar af Björgunarsveitinni á Dalvík og rennur ágóðinn af þeirri söfnun óskiptur til sveitarinnar. Næstu árin stefnir hugur þessara aðila til enn meiri flokkunar og að fá fleiri aðila að borðinu.

Elías Björnsson frá Sæplast og Júlíus Júlíusson

Sæplast setur upp litakerfi og merkingar á Sæplastkör sem verða víða á hátíðarsvæðinu og vonumst við til þess að gestir kynni sér merkingar og leggi verkefninu lið. Gámaþjónusta norðurlands sér að venju um að taka það sem flokkað er og koma á rétta staði.

Samál sem eru nýir í hópi aðalstyrktaraðila Fiskidagsins mikla leggja verkefninu lið og til gamans má geta að Fiskidagurinn mikli hefur notað um 2,6 tonn af álpappír í þessi 17 ár.

Pétur Blöndal frá Samál og Júlíus Júlíusson

Allt frá upphafi hefur Fiskidagurinn mikli lagt mikla áherslu á að umgengni sé góð. Oft hefur verið rætt um að þar sem að allt er frítt á Fiskideginum mikla sé aðgöngumiðinn að gestir gangi vel um og sýni almennt góða hegðun. Við mælumst til að gestir leggi verkefninu lið með því að nota eins mikið og hægt er sömu diska, súpuglös og fleira.

Haukur Ægir Ragnarsson frá Egils Appelsín og Júlíus Júlíusson framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla

Einnig notuðu fulltrúar Samáls og Fiskidagsins mikla tækifærið og skrifuðu undir styrktarsamning þessara aðila fyrir Fiskidaginn mikla 2018.

Frétt: aðsend
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir og aðsendar