Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag í Fjallabyggð hefur hug á að bjóða íbúum Fjallabyggðar upp á opið dansnámskeið sem haldið verður í Tjarnarborg.

Námskeiðið verður sex sunnudagskvöld kl. 20.00, klukkustund í senn, í fyrsta sinn sunnudaginn 3. febrúar nk.
Danskennari er Ingunn Hallgrímsdóttir.

Þátttaka er endurgjaldslaus.

Gert er ráð fyrir kostnaði við námskeiðið í fjárhagsáætlun 2019.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.