Nokkrar tilkynningar hafa borist til lögreglu um erlendan ferðamann sem hefur ýmist gengið inn í hús eða bankað á dyr hjá fólki hérna i umdæminu en þessi ferðamaður mun vera spyrja hvar sé að finna gistingu. Ekki er vitað hvort maður sé að ferðinni í saknæmum tilgangi eða sé hreinlega að leita sér að gistingu en lögreglu hefur ekki tekist að hafa uppá þessum erlenda ferðamanni og ekki er vitað hvernig viðkomandi ferðast á milli staða.

Lögregla vill biðja fólk um hringja í 112 ef þessi ágæti ferðamaður bankar dyr eða gengur hreinlega inn í hús, en mikilvægt er að lögregla nái tali af þessum erlenda ferðamanni.

 

Frétt: Lögreglan á Norðurlandi vestra
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir