Á dögunum færði Foreldrafélag Leifturs í Ólafsfirði börnum í Fjallabyggð ærslabelg sem settur hefur verið upp við Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar í Ólafsfirði.

Foreldrafélag Leiftur í Ólafsfirði hefur í nokkur ár unnið að því að styrkja börnin í íþróttum sem og íþróttafélög í Ólafsfirði en félagið hefur unnið sér inn pening með blaðburði í sjálfboðastarfi foreldra.

Stjórn félagsins er að hætta og taldi þeim peningum sem félagið á vel varið við kaup á ærslabelg og um leið stuðla að heilsueflandi leikaðstöðu fyrir börnin í Fjallabyggð. Foreldrafélagið sótti um styrk til Fjallabyggðar sem tók vel í erindið og styrkti verkefnið til helminga ásamt því að koma ærslabelgnum fyrir.

Þakkar Fjallabyggð fyrir frábært framtak og höfðinglega gjöf Foreldrafélagsins.

 

Frétt og mynd: Fjallabyggð