Nú stendur grásleppuvertíðin sem hæst og henni fylgir slæging eins og sjá má á mynd dagsins á facebook frá Fiskmarkaði Siglufjarðar. Þarna eru að störfum vaskir menn þeir, Jón Rúnar Gíslason,Guðmundur Gauti Sveinsson, Arnþór Helgi Ómarsson, Hörður Bjarnason, og Björn Guðnason.

Fyrsti dag­ur grá­sleppu­veiða í ár var á vor­jafn­dægri, 20. mars. Sam­kvæmt reglu­gerð mátti hefja veiðar fyrst á svæðum D, E, F og G, þ.e. við Norður­land, Aust­ur­land og að Garðskaga­vita. Heim­ilt er að hefja veiðar 1. apríl í Faxa­flóa, ut­an­verðum Breiðafirði og Vest­fjörðum, en inn­an­verður Breiðafjörður verður opnaður 20. maí.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur gefið út reglugerð nr. 270/2018 um hrognkelsaveiðar 2018.  Veiðitímabilið hjá hverjum bát er 20 dagar skv. reglugerðinni.

Upplýsingar um veiðitímabil á  veiðisvæðunum:

Grásleppuveiðileyfi hvers báts skal gefið út til 20 samfelldra daga í upphafi, þar til ákvörðun um heildarfjölda daga hefur verið tekin og skal bundið við ákveðið veiðisvæði og veiðitímabil eins og hér greinir:

A.    Faxaflói, frá línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V að línu rétt­vísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V.
Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 14. júní.

B.     Breiðafjörður, svæði 1 frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V að línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V.
Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 14. júní.
Breiðafjörður, svæði 2 innan línu sem dregin er úr Krossnesvita vestan Grundarfjarðar 64°58,30 N 023°21,40 V í Lambanes vestan Vatnsfjarðar 65°29,30 N 023°12,60 V.
Innan veiðitímabilsins frá og með 20. maí til og með 2. ágúst.

C.     Vestfirðir, frá línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V að línu rétt­vísandi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40 N 022°24,30 V.
Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 14. júní.

D.    Húnaflói, frá línu réttvísandi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40 N 022°24,30 V að línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V.
Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 2. júní.

E.     Norðurland, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V að línu rétt­vísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70 N 014°31,90 V.
Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 2. júní.

F.      Austurland, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70 N 014°31,90 V að línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90 N 014°28,00 V.
Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 2. júní.

G.    Suðurland, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90 N 014°28,00 V að línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V.
Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 2. júní.