Frábær grillréttur sem bæði er einfaldur og hægt að undirbúa áður en matargestir koma, gert er ráð fyrir einum banana á mann.

Grillaðir bananar með súkkulaði og ís

  • bananar
  • Nusica súkkulaðismjör
  • vanilluís
  • digistive kex

Takið bananann úr hýðinu og skerið rauf eftir honum endilöngum. Fyllið raufina með Nusica súkkulaðismjöri. Rífið álpappír í ca 30 x 30 cm og spreyið með PAM. Setjið bananann í miðjuna, lyftið hliðunum á álpappírnum upp og brjótið hann saman efst (skiljið eftir loft fyrir ofan bananann fyrir gufuna). Brjótið hliðarnar saman. Grillið við miðlungsháan hita í um 10 mínútur, eða þar til bananinn er mjúkur og súkkulaðið bráðnað. Á meðan er Digistive kex mulið.

 

.

 

.

 

.

 

Fjarlægið bananann úr álpappírnum og setjið á disk. Setjið ískúlur yfir bananann og dreifið muldu Digistive kexi yfir. Berið strax fram.

 

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit