Kæru íbúar á Siglufirði og víðar,

Liður í því að halda iðkendagjöldum lágum í íþróttum sem og gjöldum tengdum keppnisferðalögum niðri eru fjáraflanir.
Komandi daga munu iðkendur SSS og forráðamenn þeirra ganga í hús til að selja Happadrættismiða SSS til styrktar skíðastarfsins í vetur. Heildarverðmæti vinninga er 447.300 kr. og miðaverð aðeins 1.500 kr. Dregið verður úr seldum miðum þriðjudaginn 23. október 2018.
Vinningaskráin er glæsileg eins og sjá má, þökk sé þeim sem að styrktu okkur!

Sýnishorn af happadrættismiða SSS

Vinsamlegast takið vel á móti krökkunum.
Kærar kveðjur sendum við ykkur
Skíðafélags Siglufjarðar Skíðaborg