Ágætlega var mætt á Húnavöku á Blönduósi um helgina og fór hátíðin vel fram. Veðrið setti smá strik í reikninginn og hefði mátt vera skemmtilegra en hátíðargestir létu þó rigninguna ekki mikið á sig fá og skemmtu sér vel. Dagskráin var fjölbreytt að vanda og gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Blönduósbær iðaði af lífi alla helgina og þá sérstaklega í gær; Golfmót á Vatnahverfisvelli, Blönduhlaup, útsýnisflug, opinn dagur hjá skotfélaginu, bókamarkaður í Héraðsbókasafninu, tónleikar í kirkjunni, sýning í Heimilisiðnaðarsafninu, opið hús í Kvennaskólanum svo sitthvað sé nefnt.

Hápunktur Húnavökunnar var kvöldvakan sem fram fór fram laugardagskvöldið 21. júlí fyrir aftan Íþróttamiðstöðina að þessu sinni. Þar skemmtu Lalli töframaður, Sverri Bergmann og Halldór Gunnar, sigurvegararnir í Míkróhúninum, þau Steinunn Kristín og Kristján tóku lagið og verðlaun voru veitt fyrir best skreytta húsið sem var Urðarbraut 8. Þá söng Karítas Harpa nokkur lög og svo fór fram fjöldasöngur.

Umhverfisverðlaun Blönduósbæjar voru veitt á kvöldvökunni í þetta sinn en þau fengu Ingibjörg í Enni fyrir besta býlið, Bergþór og Hrefna fyrir Garðabyggð 6 og fyrirtækið Íslandspóstur.

Á sunnudaginn 22. júlí fór fram hin árlega prjónaganga á vegum Textílsetursins og afhjúpað var upplýsingaskilti um sögu kirkjugarðsins á Blönduósi. Félagarnir Skarphéðinn Ragnarsson, fráfarandi formaður stjórnar kirkjugarðsins og  hvatamaður að uppsetningu skiltisins og Hávarði Sigurjónssyni umsjónamanns garðsins til margra ára, afhjúpuðu skiltið. Að því loknu fór séra Sveinbjörn Einarsson sóknarprestur með bæn. Jón Torfason sagnfræðingur frá Torfalæk rifjaði svo upp sögu garðsins.

 

Frétt: Húnahornið