Lögreglunni á Norðurlandi eystra bárust í gær tvær tilkynningar um erlenda menn sem fóru í hús á Akureyri og buðu fram vinnu við garðaumhirðu eða þvott á bifreiðastæðum.

Lögreglan telur fullt tilefni til að vara fólk við að taka slíkum tilboðum, enda allar líkur á að hér sé um svikastarfsemi að ræða.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið nokkrar tilkynningar sama eðlis og hefur rætt við erlenda aðila sem hafa verið að bjóða fram þjónustuna.

Þeir eru allir af írsku bergi brotnir og hafa farið um á nokkrum bílum. Þessi mál eiga það sammerkt að sá sem vill selja þjónustuna kemur fram með mikilli ýtni og frekju og er jafnvel ógnandi.
Virðist helst reynt að ,,semja“ við eldra fólk. Ef samið er um verkkaup er svo jafnvel heimtuð miklu hærri greiðsla en samið var um í upphafi, eða hlaupið frá verkinu ef greitt var fyrir fram.

Lögreglan varar við þessum mönnum og hvetur fólk til að láta lögregluna vita af þeim sem bjóða svona þjónustu, með því að hringja inn tilkynningu í 112.

 

Mynd: Trölli.is