Um helgina fer fram fyrsta túrneringin af þremur á Íslandsmóti neðri deilda í blaki.

Í Fjallabyggð verður mikið um dýrðir en alls verða spilaðir 67 leikir í báðum íþróttahúsum sveitarfélagsins. Á Ólafsfirði munu lið í 2. og 3. deild karla spila en BF á lið í 3. deild karla.

3. deild kvenna mun hins vegar etja kappi á Siglufirði og á BF lið í þeirri deild.

Á laugardeginum hefjast leikir kl 09:00 og er áætlað að síðustu leikjum ljúki um kl 17:00 á Ólafsfirði og 18:00 á Siglufirði. 

Á sunnudeginum hefjast leikir kl 08:30 og áætlað að síðustu leikjum ljúki um kl 13:00.

Leikir BF liðanna eru eftirfarandi:

3. deild kvenna á Siglufirði:

  • Lau kl 10:10 við Hauka
  • Lau kl 12:30 við Völsung B
  • Lau kl 14:50 við Álftanes D
  • Lau kl 16:00 við Dímon Heklu
  • Sun kl 08:30 við Aftureldingu D
  • Sun kl 10:50 við Fylki B

 

3. deild karla á Ólafsfirði:

  • Lau kl 10:10 við Hauka B
  • Lau kl 12:30 við Hauka A
  • Lau kl 14:50 við Eflingu-Laugaskóla
  • Sun kl 08:30 við Sindra
  • Sun kl 10:50 við Álftanes C

Félagið hvetur áhugasama til að kíkja í íþróttahúsin og hvetja BF liðin.

 

Af facebook síðu Blakfélags Fjallabyggðar