Sterkar vindhviður gerðu það að verkum að í Ólafsfirði fauk um koll jólaskraut og jólahús í gærmorgun, einnig eyðilögðust jólaseríur sem þar voru. Vaskir starfsmenn Fjallabyggðar brugðust skjótt við, komu til að rétta húsin við og bjarga því sem bjargað varð.

Starfsmenn Fjallabyggðar að störfum

Eftir sem áður er afar jólalegt í Ólafsfirði þrátt fyrir snjóleysið. Veðurspá næstu daga er fremur meinhægt veður eins og spá Veðurstofunnar ber með sér.

Á morgun er spáð suðaustan 13-20 en hægari breytileg átt suðvestanlands. Víða rigning, talsverð eða mikil rigning um landið suðaustanvert fram eftir kvöldi. Austan átt 8-13 á morgun, skúrir og hiti 0 til 5 stig, en hægari, þurrt og vægt frost norðantil.

 

Jólahúsin fuku um koll

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Hæg austlæg átt, skýjað með köflum og þurrt en skúrir suðaustanlands. Hiti 0 til 4 stig en frost 0 til 4 stig norðvestantil.

Á föstudag og laugardag:
Norðaustan 3-10 og smáskúrir norðaustantil á landinu, en bjart með köflum suðvestanlands. Vægt frost en frostlaust með suðausturstöndinni.

Á sunnudag (Þorláksmessa):
Hæg breytileg átt, bjart veður og frost 0 til 7 stig, en dálítil slydda vestast á landinu og hlýnar.

Á mánudag (aðfangadagur jóla):
Útlit fyrir suðvestanátt með rigningu, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 1 til 6 stig.

.

 

Búið er að rétta húsin við

 

Myndir: Guðmundur Ingi Bjarnason