Laxá á Ásum opnaði í gærmorgun, stundvíslega kl. 7:00. Fyrsti laxinn var kominn á land stuttu síðar en það var Sturla Birgisson, leigutaki, sem landaði honum.

Fyrsti laxinn veiddist í Dulsum, en veiðistaðurinn er einn af þeim betri þegar lax er að ganga. Alls veiddust 10 laxar þennan fyrsta dag en meðal þeirra var einn 92 sentimetra hængur, veiddur í Sauðaneskvörninni.  Laxar hafa sést víða um ána , vatnsmagnið er í meira lagi og líta næstu dagar vel út.

/Lee Ann

 

Frétt:  feykir.is