Fimmtudaginn 19. apríl, Sumardaginn fyrsta, verður Síldarminjasafn Íslands opið frá kl. 13 – 17 í tilefni Eyfirska safnadagsins.

Jafnframt verður boðið upp á fyrirlestur og myndasýningu:
Örlygur Kristfinnsson segir frá leikjum barna í síldarbænum, þar sem plönin, bryggjurnar og fjaran voru sem ævintýraheimur.
Sýndar verða valdar ljósmyndir af börnum við leik úr Ljósmyndasafni Siglufjarðar og gestir hvattir til að greina myndirnar.
Boðið verður upp á kaffi milli dagskrárliða.

Dagskráin hefst kl. 14:00 í Bátahúsinu – allir velkomnir!

Frétt og myndir fengnar af vef: Síldarminjasafns Íslands