Fjallabyggð býður uppá Lista- og menningargöngu um Siglufjörð fimmtudaginn 6. desember nk. frá kl. 18:00 til rúmlega 20:00.

Gangan hefst á Ráðhústorginu kl. 18:00.

Vakin er athygli á að kl. 17:00 mun starfsfólk Síldarminjasafnsins kynna nýútgefna bók safnsins, Siglufjörður. Ljósmyndir/Photographs 1872-2018 í Gránu.
Því er tilvalið fyrir áhugasama að byrja í Gránu og sameinast svo listagöngunni kl. 18:00 á Ráðhústorginu.  

Kíkt verður í heimsókn til eftirtalinna aðila og gert ráð fyrir að hver heimsókn taki um 10 mínútur.

18:00-18:10        Ljóðasetur – Opið hús

18:15-18:25         Alþýðuhúsið – Kompan, Sýningaropnun jólasýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur

18:30-18:40        Fríða – Súkkulaðikaffihús – Opið hús

18:50-19:00        Gallerí Imba – Fossvegi 33

19:10-19:20         Ljósmyndasögusafnið

19:25-19:35         Iðjan Dagvist – Opið hús

19:40-19:50        Vinnustofa Abbýjar – Jólamarkaður opið hús

19:55-20:05        Söluturninn í Ytrahúsi: Listsýning Arnars Herbertssonar

20:05-20:15        Sjálfsbjörg Siglufirði – Opið hús

 

Kl. 19:00-22:00 Jólakvöld á Siglufirði – lengri opnunartími verslana víðs vegar um bæinn.