Ljósin tendruð á trénu við Menningarhúsið Tjarnarborg í dag, sunnudaginn 2. desember kl. 15:00

  • Hátíðarávarp; Ólafur Stefánsson
  • Börn úr leikskólanum Leikhólum syngja jólalög
  • Júlíus og Tryggvi Þorvaldssynir flytja nokkur vel valin lög
  • Barn úr leikskólanum Leikhólum tendrar ljósin á trénu
  • Hó, hó, hó! Jólasveinarnir koma í heimsókn með eitthvað gott í pokanum
  • Dansað í kringum jólatréð með jólasveinunum

Skíðafélag Ólafsfjarðar býður öllum uppá heitt kakó og piparkökur. Einnig verður nýi troðari Skíðafélagsins til sýnis, kynning á námskeiðum framundan og tilboð á árskortum.

13:00-16:00     Hinn árlegi Jólamarkaður Tjarnarborgar opinn í tengslum við tendrun jólatrésins í Ólafsfirði.

17:00-18:00     Aðventuhátíð í Ólafsfjarðarkirkju