Matvælastofnun varar við neyslu á sólþurrkuðum Goji berjum vegna málmleifa. Um er að ræða eina framleiðslulotu og hefur fyrirtækið Heilsa með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað berin. Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli á markaði.

Nánar um vöruna:

  • Vöruheiti: Raw Chocolate Co. Organic. Goji Berries, 150g
  • Innhaldslýsing: Sólþurrkuð lífræn Goji ber
  • Strikamerki: 5060135240271
  • Innflytandi: Heilsa, Bæjarflöt 1, 112 Reykjavík
  • Lotunúmer: 2201 Dagsetning: Maí 2019
  • Dreifing: Ofangreind vara hefur verið seld í verslunum Nettó og í Heilsuhúsinu.

.

Viðskiptavinir geta skilað vöru sem er með þessu lotunúmeri í næstu verslun Heilsuhússins eða í Nettó. Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf í síma 517-0670.

Ítarefni

 

Frétt : Matvælastofnun