Það hefur verið gestkvæmt á Síldarminjasafninu í júlí, en aldrei fyrr hafa jafn margir sótt safnið heim á einum mánuði.

Annasömustu dagarnir voru í kring um Norrænu strandmenningarhátíðina, Þjóðlagahátíð og tíðar komur skemmtiferðaskipa.
Alls heimsóttu um 10.700 manns safnið í júlímánuði – en til samanburðar má benda á að fyrir tíu árum síðan voru gestir um 7.600 á ársgrundvelli.

Heildarfjöldi gesta fyrstu sjö mánuði ársins er 18.500, þar af um 80% erlendir gestir. 49 síldarsaltanir hafa farið fram á planinu við Róaldsbrakka og 200 hópar hafa fengið leiðsögn um safnið það sem af er ári.

Mynd: Gunnar Smári Helgason
Frétt: Síldarminjasafn Íslands