Gámaþjónusta Norðurlands ehf sér um sorphirðu í Dalvíkurbyggð. Tvær tunnur eru undir heimilissorp, svört tunna fyrir óflokkað sorp og græn fyrir flokkað endurvinnanlegt sorp.

Í svörtu tunnunni er 30 lítra, brúnleitt innlegg sem er undir lífrænan úrgang og í grænu tunnunni er stærra svart innlegg fyrir hluta af endurvinnanlega efninu. Svarta tunnan er losuð á tveggja vikna fresti en græna tunnan mánaðarlega.

Um áramótin hefst notkun klippikorta á móttökustöðinni við Sandskeið.

Allir greiðendur sorphirðugjalda fyrir heimili og sumarbústaði, geta nálgast klippikort á skrifstofu sveitarfélagsins. Með sorphirðugjöldunum fylgir eitt klippikort á ári hverri fasteign. Ef kortið klárast er hægt að kaupa nýtt kort á kr 8.500.

Sjá nánar á heimasíðu: Dalvíkurbyggðar