Leikflokkur Húnaþings vestra og Félagsheimilið Hvammstanga skrifuðu undir samning vegna kaupa á ljósabúnaði fyrir rúmar 2 milljónir króna í Félagsheimilið. Nýji búnaðurinn mun leysa af hólmi ljósabúnað sem er að hluta til upprunalegur eða frá árinu 1960.

Sigurvald Ívar Helgason mun sjá um uppsetningu en það er gaman að segja frá því að Helgi Ólafsson faðir hans setti upp upprunalega búnaðinn þá nýútskrifaður rafvirki. Hafði Helgi unnið við svipuð störf í Iðnó í Reykjavík.

Nýji ljósabúnaðurinn verður strax tekinn í notkun þar sem Leikflokkur Húnaþings vestra mun sýna Snædrottninguna í desember og söngleikinn Hárið um næstu páska. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu leikflokksins leikflokkurinn.is

Á myndinni má sjá Sigurð Líndal stjórnarformann Félagsheimilisins og Ingibjörgu Jónsdóttur fyrir hönd leikfélagsins undirrita samninginn.