Nú er unnið hörðum höndum við framkvæmdir og standsetningu á nýjum veitingastað í Dalvík. Staðurinn sem heitir Norður er staðsettur við Hafnarbraut 5, þar sem veitingastaðurinn við Höfnina var áður til húsa.

Eigendur eru Helgi Einarson, Helga Ingólfsdóttir, Snæþór Arnþórsson og Aníta Guðbrandsdóttir.

Bráðabirgðaopnun verður næstkomandi helgi en þá fer fram hátíðin vinsæla Fiskidagurinn Mikli. Formleg opnun Norður verður föstudaginn 24. ágúst 2018.

Matseðillinn verður einfaldur í sniðum yfir fiskidagsvikuna, t.a.m. hamborgarar, pizzur, fiskur í orly, kótilettur og kjúklingasalat.

Meðfylgjandi myndir eru frá framkvæmdum.

.

 

.

 

.

 

.

Myndir: Norður
Frétt: Veitingageirinn