Kjöri íþróttamanns USVH (Ungmennasambands Vestur-Húnavatnssýslu) var lýst í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga kl. 19:00 þann 28. desember 2018.

Fimm íþróttamenn voru tilnefndir að þessu sinni:

Dagbjört Dögg Karlsdóttir körfuknattleikskona
Hannes Ingi Másson körfuknattleiksmaður
Helga Una Björnsdóttir hestaíþróttakona
Perla Ruth Albertsdóttir handknattleikskona
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona

Íþróttamaður USVH árið 2018 var kjörinn Perla Ruth Albertsdóttir handknattleikskona frá Eyjanesi í Hrútafirði leikmaður Selfoss og íslenska kvennalandsliðsins. Í öðru sæti varð Helga Una Björnsdóttir hestaíþróttakona hjá Þyt og í þriðja sæti Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona hjá Keflavík.

Perla Ruth æfir og spilar handknattleik með UMF. Selfoss í Olís deildinni þar sem liðið endaði í 6. sæti deildarinnar í vor sem er besti árangur liðsins í sögu félagsins og var Perla í stóru hlutverki í liðinu í vörn og sókn. Perla endaði það tímabil með 105 mörk í 19 leikjum ásamt því að fiska mikið af vítaköstum og vera lykilleikmaður í varnarleik liðsins. Perla komst einnig með liði Selfoss í 8 liða úrslit bikarkeppni HSÍ.

Selfoss situr nú í 8. Sæti Olísdeildarinnar og hefur Perla spilað nánast hverja mínútu liðsins ásamt því að vera búin að skora 60 mörk í þeim 10 leikjum sem eru búnir.  Perla er einn af þremur fyrirliðum liðsins þetta tímabilið. Að loknum 10 umferðum í Olísdeildinni hefur Perla verið valin oft í lið umferðarinnar í uppgjörsþættinum Seinni bylgjan  á Stöð2 sport ásamt því að vera í 6 sæti á lista yfir sterkustu leikmenn deildarinnar útfrá tölfræðiforritinu HB statz. Einnig er hún einn af 9 leikmönnum deildarinnar sem hefur fengið svokallaða tíu í einkunn fyrir sinn sóknarleik í einum leik. Hún hefur verið valin 4 sinnum

Perla var valin í æfingahóp A-landsliðsins í janúar 2018 og hefur tekið þátt í 7 landsliðsverkefnum á árinu.

Þetta er í annað sinn sem Perla Ruth hlýtur titilinn íþróttamaður USVH og einnig hlaut hún titilinn íþróttamaður Árborgar í annað sinn í desember.

Íþróttamenn USVH geta orðið þeir íþróttamenn 16 ára og eldri sem lögheimili eiga í Húnaþingi vestra eða keppa undir merkjum aðildarfélaga innan USVH. Það eru stjórnarmenn í aðildarfélögum USVH og stjórn USVH sem kjósa íþróttamanninn.

Perla Ruth Albertsdóttir handknattleikskona

 

Myndir: aðsendar