Átakið Plastlaus september er hafið

Almenningur er hvattur til að gera nokkrar einfaldar breytingar til að draga úr plastnotkun í þessum mánuði, sem og síðar meir. Sleppa plastpokum, nota fjölnota kaffimál, segja nei við einnota rörum og öðru sem fylgir máltíðum.

Umhverfisstofnun vekur athygli á því magni sem við notum af plasti, en hver fjögurra manna fjölskylda notar um 13 kg af plastumbúðum á mánuði. Þá má benda á að veislur þar sem borðbúnaður er einnota þykja ekki til fyrirmyndar nú um stundir!

Umhverfis – og auðlindaráðaneytið hefur tilkynnt um að Umhverfisstofnun fengi 3,5 milljónir kr. í plastverkefni næstu tvö árin

 

Frétt: Kristín Sigurjónsdóttir/Umhverfisstofnun
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir