Á Plastpokalausa deginum, þann 3. júlí,  munu Farfuglaheimilin á Íslandi taka höndum saman til að vekja athygli gesta á mengun af völdum plasts. Þann dag munu gestir sem gista á Farfuglaheimilunum í landinu fá gefins fjölnota poka úr lífrænni bómull.

Með þessu eru gestir hvattir til að afþakka plastpoka á ferðalaginu og vera ábyrgir ferðamenn.  Þrjátíu Farfuglaheimili, víðsvegar á Íslandi, taka þátt í viðburðinum.

Plast er til margra hluta nytsamlegt en því miður erum við farin að treysta um of á einnota plast í daglegu lífi – með alvarlegum afleiðingum fyrir umhverfið.  Á hverju ári eru um 5 milljarðar plastpoka notaðir. Um helmingur þeirra er aðeins notaður í eitt skipti og endar í landfyllingum eða sem mengun á landi og sjó.

  • Ein milljón plastpoka er í notkun í heiminum á hverri mínútu
  • Meðal Evrópubúi notar um 500 plastpoka á ári hverju
  • 3.4 tonn af plasti eru framleidd í löndum Evrópusambandsins ár hvert
  • Plastpokar eru framleiddir úr hráolíu sem er óendurnýjanleg auðlind

Tökum höndum saman og drögum úr notkun plastpoka

Poki sem afhentur verður á plastpokalausa deginum. Mynd:Aðsend.

Frétt: Feykir.is
Forsíðumynd: Kristín Sigurjónsdóttir