Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi er komin út hjá Isavia. Höfundur er Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur. Bókin er gefin út bæði í rafbókarformi og prenti.

Víða í sögunni má finna upplýsingar um Siglufjarðarflugvöll. Sagan er yfir 500 blaðsíður, en hægt er að leita í henni t.d. með leitarorðinu siglufj  þá finnur maður allt sem byrjar á því, óháð beygingarmyndum eða endingum orðs.

Árið 2016 voru 70 ár liðin síðan Íslendingar fengu herflugvelli bandamanna í Reykjavík og Keflavík afhenta til eignar og hófu rekstur flugleiðsöguþjónustu á stórum hluta Norður-Atlantshafs.

Árið 2017 voru líka þrjátíu ár liðin frá opnun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar sem olli straumhvörfum í farþegaflugi um Keflavíkurflugvöll. Flugsamgöngur og innviðir sem þeim tengjast eru undirstaða sívaxandi ferðaþjónustu sem orðin er einn mikilvægasti atvinnuvegur þjóðarinnar.

Hægt er að nálgast bókina rafrænt og ókeypis hér. Saga Isavia_WEB_061118

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia: „Ég vil þakka öllum sem komu að gerð verksins og sérstaklega höfundinum, Arnþóri Gunnarssyni sagnfræðingi, fyrir afar metnaðarfullt starf. Þarna er skráður mikilvægur hluti af sögu Íslands sem ekki má gleymast.“

Isavia ákvað að minnast þessara merku tímamóta með ritun 70 ára sögu flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi sem leikið hefur lykilhlutverk í samgöngusögu þjóðarinnar. Bókinni Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi er ætlað að fagna þessum og öðrum merkum áföngum þessarar mikilvægu sögu. Útgáfan á líka vel við á afmælisári 100 ára sjálfstæðis þjóðarinnar. Verkið telur nærri 550 blaðsíður og er allt hið glæsilegasta. Það er tileinkað öllu starfsfólki Isavia og forvera félagsins ásamt öðrum sem lagt hafa dygga hönd á plóginn við uppbyggingu og rekstur þeirrar mikilvægu þjónustu, sem stuðlaði m.a. að því að rjúfa einangrun í byggðum landsins.