Síðustu ár hefur Fjallabyggð verið hluti Saman-hópsins, en aðalmarkmið þess hóps er að auka samstarf fólks sem vinnur að forvörnum. Skilaboðum hópsins hefur frá stofnun verið komið á framfæri í fjölmiðlum, með umræðum og auglýsingum, en hópurinn leggur áherslu á að starf hans skili sér til allrar landsbyggðarinnar.

Í sumar vill Saman-hópurinn undirstrika mikilvægi samverunnar fyrir forsjárfólk og unglinga, enda hafa rannsóknir sýnt að samvera fjölskyldunnar er ein helsta skýring á góðu gengi Íslendinga í forvörnum á undanförnum árum. Er þessi samvera, og mikilvægi þess að saman skapi fjölskyldan góðar minningar, megininntakið í auglýsingum hópsins, en þeim hefur verið dreift víða. Reynt er að undirstrika að samvera þurfi ekki endilega að þýða útgjöld, við getum spjallað saman, spilað saman, sungið, leikið, hjólað, eldað og farið í göngutúra svo dæmi séu tekin.

Í Fjallabyggð er hæglega hægt að finna eitthvað skemmtilegt að gera saman. Má þar til að mynda nefna náttúruna okkar, fjöllin, hafnirnar, skógræktina á Siglufirði, bókasöfnin, söfn, setur og gallerý, sundlaugarnar, golfvellina, íþróttavellina svo eitthvað sé nefnt.

Góða og gleðilega samveru í sumar!

 

Frétt: Fjallabyggð