Þrír starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar eru með starfsstöð á Hvammstanga og sinna þeir selarannsóknum í samstarfi við Selasetur Íslands.

Í júní síðastliðnum fluttu þeir í nýtt húsnæði á þriðju hæð að Höfðabraut 6. Á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunar segir að með flutningnum batni aðstaða starfsfólks hjá starfsstöðinni frá því sem áður var og gefur aukna möguleika á samstarfi og samskiptum.

 

Selasetur Íslands

 

Á vef Selaseturs Ísland segir meðal annars  “Meginverkefni líffræðirannsóknasviðs eru rannsóknir á selastofnunum við Ísland. Meðal verkefna eru vöktun á stofnstærðum útsels og landsels við Ísland og rannsókn á fæðuöflun sela, ásamt áhrifum sela á fiskistofna við landið.

Frekari upplýsingar um rannsóknarverkefni sviðsins má finna hér á ensku (íslensk útgáfan er í vinnslu)

 

Frétt og myndir: Kristín Sigurjónsdóttir