Siglfirðingagolf heldur Siglfirðingagolfmótið 2018  á velli GKG í Kópavogi og Garðabæ um helgina.

Skilyrði fyrir þátttöku er að vera Siglfirðingur að ætt og uppruna, vera giftur einum slíkum eða eiga önnur sterk tengsl við fjörðinn fagra.

Keppnisfyrirkomulag: punktakeppni og vegleg verðlaun að vanda í karla- og kvennaflokki.  Að auki er sigur í höggleik og hlýtur sá aðili nafnbótina Siglfirðingameistari.

Aðeins þeir sem eru í klúbbi með löglega forgjöf geta unnið til verðlauna, aðrir leika sem gestir en geta unnið sér inn aukaverðlaun. Hámarksforgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum.

Verði tveir einstaklingar jafnir í verðlaunasæti, þá sigrar sá sem er með fleiri punkta á seinni níu holunum. Séu þeir enn jafnir gilda síðustu 6 holurnar og þá síðustu 3 holurnar og þá 18 hola. Ef aðilar eru enn jafnir skal kasta hlutkesti.

 

Sjá frekari upplýsingar um mótið á: Siglfirðingagolf

 

Frétt: aðsend