Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Tindaöxl í dag, sunnudaginn 9. desember. Ef allt gengur eftir verður opið frá kl. 13-16 en svæðið er þó bundið takmörkunum.

Frítt er í fjallið á opnunardag eins og venja er. Einnig verður 20% afsláttur af vörum frá Fjallakofanum, kaffi, kakó og piparkökur fyrir gesti og gangandi. Kynning á starfinu framundan, námskeið o.fl.

Skíðagöngubraut var troðin í dag í boði Árna Helgasonar ehf. á Skeggjabrekkudal. Tilvalið að skella sér á gönguskíði og koma svo í kaffi/kakó í skíðaskálann eftir góða útivist.