Steiktur fiskur í pylsubrauði kann að hljóma furðulega en kemur skemmtilega á óvart og krakkarnir elska þetta.

 

Það þarf enga uppskrift fyrir þennan rétt.  Þorskur (eða sá fiskur sem þér líst best á) er skorinn í passlega stóra bita til að rúmast í pylsubrauðunum, kryddaður með salti og pipar, velt upp úr hrærðu eggi, síðan raspi og að lokum steiktur á pönnu í vel af bragðdaufri olíu.

Pylsubrauðin eru hituð í ofni (hita þau í pokanum við 90° í nokkrar mínútur, þá verða þau svo mjúk og góð).

Setjið tómatsósu, remúlaði, súrar gúrkur, kál, hrásalat eða það sem hugurinn girnist í pylsubrauðið og síðan steikta fiskinn. Berið fram með ofnbökuðum kartöflubátum eða frönskum.

Súpergott!

 

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit