Á fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir 2019 er gert ráð fyrir fjármagni til að halda strákanámskeiðið Öflugir strákar í dag 7. janúar fyrir drengi í 4.-7. bekk og fyrirlestur fyrir foreldra sama dag.

Bjarni Fritzson kennir námskeiðið. Upp komu ýmsar hugmyndir í tengslum við þá þörf sem er fyrir strákanámskeið.

Deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála er falið að skoða útfærslur á þeim hugmyndum sem komu upp á fundinum og leggja fyrir fund fræðslu- og frístundanefndar í febrúar.

 

Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir