Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 329 Toyota bifreiðar af tegundunum Prius, Prius Plug-in og C-HR Hybrid sem framleiddar voru á árabilinu 2015 til 2018. Um er að ræða 14 Prius Plug-in bifreiðar, 39 Prius bifreiðar og 276 C-HR bifreiðar.

Ástæða innköllunarinnar er að bifreiðarnar sem um ræðir hafa vélarrafkerfi sem er tengt við stjórntölvu. Hlíf er við rafkerfið þar sem það tengist inná tölvuna. Vegna misræmis við samsetningu getur rafkerfið lagst upp að hlífinni. Ef ryk eða aðrar agnir hafa safnast saman milli hlífarinnar og rafkerfisins getur titringur frá vélinni valdið því að agnirnar nudda sig gegnum kápuna á rafkerfinu og inn að vírum sem þar eru. Ef kápan á vírunum skemmist getur orðið skammhlaup milli tveggja víra og við það myndast hiti. Ef nægur hiti myndast við skammhlaupið er aukin eldhætta.

Innköllunin felst í því að skoðað verður umrætt rafkerfi og skipt um ef þurfa þykir. Aðgerð er eigendum að kostnaðarlausu og tekur allt frá 20 mínútum til 4.7 klukkustunda. Eigendum umræddra bifreiða verður gert viðvart bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

 

Frétt: Neytendastofa.is