Þeir íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Fjallabyggð sem vilja koma með erindi, tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun 2019 eru hvattir til að senda þær inn til bæjaryfirvalda.

 

Styrkir eða framlög vegna starfsemi ársins 2019.

 

Þeir einstaklingar og félagasamtök sem hafa hug á að sækja um styrki eða framlög vegna starfsemi ársins 2019 er bent á að senda inn umsóknir til bæjaryfirvalda.

Umsækjendur eru hvattir til að sækja um rafrænt í gegnum íbúagáttina “Mín Fjallabyggð” sem finna má á heimasíðu Fjallabyggðar.

Umsóknarfrestur er til 5. október nk.

Með umsókninni skal fylgja:

  • Nýjasti ársreikningur umsóknaraðila og/eða hliðstæð gögn.
  • Greinargerð um ráðstöfun styrkja Fjallabyggðar á árinu 2018 ef við á.

 

Vanti tilskilin gögn með umsókninni getur það haft í för með sér synjun umsóknar.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.

Fjallabyggð 10. september 2018
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar

 

Umsóknareyðublað 2019 til útprentunar (pdf)

 

Frétt: Fjallabyggð