Byggðastofnun hefur úthlutað rúmlega 170 milljónum króna í verkefnastyrki til Brothættra byggða á undanförnum árum. Markmið verkefnisins er að stöðva viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarkjörnum og í sveitum landsins.

Á vef Byggðarstofnunar kemur fram að markmiðið með verkefninu Brothættum byggðum er m.a. að fá fram skoðanir íbúanna sjálfra á framtíðarmöguleikum heimabyggðarinnar og leita lausna á þeirra forsendum í samvinnu við ríkisvaldið, landshlutasamtök, atvinnuþróunarfélag, sveitarfélagið, brottflutta íbúa og aðra.

Hér að neðan má sjá hvaða verkefni í Grímsey hlutu styrk frá Byggðarstofnun.

 

Grímsey

Nafn umsækjanda Nafn verkefnis

Styrkupphæð

Ár

Akureyrarkaupstaður og Fjarskiptasjóður í samstarfi við Mílu Fjarskiptamál kr. 4.000.000,- 2016
Arctic Trip ehf. Sveinsstaðir Guesthouse kr. 1.900.000,- 2017
Rannveig Vilhjálmsdóttir Brú yfir í borgina kr. 1.150.000,- 2017
Kiwanisklúbburinn Grímur Frisbígolfvöllur í Grímsey kr. 1.800.000,- 2017
Gistiheimilið Básar Vefsíða fyrir Gistiheimilið Bása kr. 700.000,- 2017
JT Consulting ehf. Vistvæn orkuvinnsla í Grímsey kr. 1.500.000,- 2017
Grímseyjarskóli Veðrið kr. 350.000,- 2017
Anna María Sigvaldadóttir Vefsíða fyrir gistiheimilið Gullsól kr. 700.000,- 2017
Halla Ingólfsdóttir Minjagripir kr. 450.000,- 2017
Sigurður Bjarnason Fuglaskoðunarhús kr. 450.000,- 2017
Unnur Ingólfsdóttir Verslun í Grímsey kr. 1.070.000,- 2017
Básar ehf. Lagfæring á ytra byrði kr. 1.500.000,- 2018
Kvenfélagið Baugur Sumarsólstöðuhátíð kr. 1.000.000,- 2018
Grímseyjarskóli Eyjasamstarf kr. 340.000,- 2018
Steinunn Stefánsdóttir Grímseyjarpeysan kr. 460.000,- 2018
Gullsól Stækkun á palli kr. 2.300.000,- 2018
Sigurður Henningsson Jetski tours in Grímsey kr. 750.000,- 2018
Guðrún Inga Hannesdóttir Matur og menning í Grímsey kr. 650.000,- 2018
kr. 21.070.000,-

 

Frétt og mynd: Kristín Sigurjónsdóttir