Á vef ASÍ segir að við getum gert ýmislegt sjálf til að lækka bankakostnaðinn okkar og hér eru nokkur góð ráð til þess. Flest viljum við komast hjá óþarfa kostnaði ef hægt er. Gjöld bankanna hafa hækkað töluvert undanfarin ár eins og kom fram í úttekt verðlagseftirlits ASÍ í síðustu viku og ýmsar aðgerðir hjá bönkunum eru orðnar mjög dýrar.

Lækkaðu færslukostnaðinn
Lækkaðu kostnaðinn við færslur hérlendis og notaðu kreditkort í stað debetkorts eða taktu út pening. Hver færsla á debetkorti kostar 18-19 kr. en færslugjöld af kreditkortum eru engin. Ef þú ert ekki með kreditkort geturðu tekið út reiðufé í hraðbanka með debetkorti en það kostar ekkert svo lengi sem þú passar að fara í hraðbanka sem er merktur bankanum þínum.

Hraðbankar
Úttekt reiðufjár
Ef þú þarft að taka út reiðufé borgar sig að taka út af debetkorti í hraðbanka hjá þínum banka en það kostar ekkert. Úttekt með kreditkorti ber hins vegar með sér þóknun til bankans upp á 2,2%.
Innlögn reiðufjár
Þarft þú að leggja reiðufé inn á reikning í öðrum banka eða inn á þinn eigin reikning?
Ef þú þarft að leggja reiðufé inn á reikning í öðrum banka kostar það 495 kr. í útibúum Arion banka, 375 kr. í útibúum Íslandsbanka og 100 kr. í útibúum Landsbankans. Það er mun hagstæðara að nota hraðbanka til að leggja reiðufé inn á reikning í öðrum banka en hjá Landsbankanum og Íslandsbanka kostar það ekkert en í Arion banka kostar það 175 kr.
Ekkert kostar fyrir viðskiptavini að leggja reiðufé inn á sinn eigin reikning í útibúum Landsbankans og Íslandsbanka en það kostar 195 kr. hjá Arion banka.

Lækkaðu tilkynninga- og greiðslugjöld
Tilkynninga- og greiðslugjöld hafa hækkað um tugi prósenta hjá öllum bönkunum. Þú getur sparað þér pening með því að láta alla reikninga skuldfærast sjálfkrafa rafrænt en slík skuldfærsla kostar 120-130 kr. hjá bönkunum. Það kostar hinsvegar 420- 470 kr. að fá greiðsluseðil heim og rafrænn greiðsluseðill sem er ekki í skuldfærslu kostar 300-310 kr.

Athugaðu einnig hvort þú ert að fá heimsenda reikninga frá þeim fyrirtækjum sem þú ert að versla við. Með því að fá rafræna greiðsluseðla í stað heimsendra reikninga getur þú sparað þér töluverðar upphæðir í hverjum mánuði.

Ertu að fara til útlanda?
Kredit eða debet kort:
Notaðu kreditkort í stað debetkorts ef þú ert að greiða hjá þjónustu- eða söluaðila.
Kreditkortafærslur í útlöndum kosta ekkert en hins vegar borgarðu 1% af öllum greiðslum í kostnað ef þú notar debetkort.
Reiðufé
Ef þú vilt vera með pening í lausu er hagstæðast að taka út gjaldeyri áður en farið er út en útborgun í hraðbanka erlendis með debetkorti kostar 2% og 2,75% með kreditkorti (lágmarks þóknun vegna úttektar með kreditkorti í hraðbanka kostar 690 kr. -820 kr.). Líklegt er að bankinn sem þú tekur út hjá leggi einnig gjald á úttektina og er upphæðin þá enn hærri. Í einhverjum tilfellum er hægt að panta gjaldeyri á netinu hjá bönkunum og sækja í útibú en einnig er hægt að taka gjaldeyri út úr einhverjum hraðbönkum. Það er dýrara að taka gjaldeyri út á flugvellinum þannig það er betra að gera það áður en þú leggur af stað í ferðina.
Passaðu þig að taka ekki út of mikið svo þú sitjir ekki uppi með gjaldeyri eftir ferðina og þá er ekki gott að vera of mikið af lausafé á sér ef eitthvað kemur upp á.
Greiða með greiðslukorti í sínum eigin gjaldmiðli?
Þegar fólk verslar í útlöndum er það stundum spurt hvort það vilji greiða með greiðslukorti í sínum eigin gjaldmiðli í stað gjaldmiðli viðkomandi lands. Í flestum tilfellum bætir þjónustuaðilinn yfirleitt álagsgreiðslu ofan á kaupverðið og í sumum tilfellum bætist einnig við þóknun. Ef maður vill komast hjá aukalegum kostnaði er því betra að borga í gjaldmiðli viðkomandi lands.

Netbanki og app í stað þjónustu í útibúi
Notaðu netbankann eins og þú getur í stað þess að fara í útibúin. Í netbanka eða appi greiðirðu lítið eða ekkert fyrir flesta þjónustu á meðan flestar aðgerðir kosta pening í útibúunum og geta upphæðirnar numið töluverðum fjárhæðum.

Ekki láta hanka þig á FIT kostnaði
FIT kostnaður er sá kostnaður sem þú borgar ef þú ferð fram yfir á debet kortinu þínu. Kostnaðurinn sem fylgir þessu er gífurlega hár en fyrir hverja umfram úttekt af kortinu sem nemur 5.000 kr. eða minna borgarðu frá 895– 950 kr. fyrir, eftir því hjá hvaða banka þú ert. Þetta er hlutfallslega mjög hár kostnaður sem hægt er að koma í veg fyrir með því að fylgjast með stöðunni á kortinu þínu.

Ef þetta er eitthvað sem þú hefur oft lent í eða þú telur að sé líklegt að þú munir lenda í gæti borgað sig fyrir þig að vera með lítinn yfirdrátt á kortinu, 10-20 þúsund króna yfirdrátt sem nýtist þá ef að þú ert búinn með innistæðuna á kortinu í stað þess að borga FIT kostnað. Vextir af svo litlum yfirdrætti í nokkra daga eru í mesta lagi nokkrir tíkallar sem er mun minna en um 900 kr.
Til að þetta borgi sig er ekki sniðugt að nýta yfirdráttinn nema í algjörri neyð.

Þarft þú að fara í greiðslumat vegna íbúðalána?
Það gæti verið hagstæðara fyrir þig að fara í gegnum rafrænt greiðslumat en í greiðslumat í útibúi. Hjá Arion banka og Íslandsbanka er um 80% eða yfir 4.000 króna verðmunur á rafrænu greiðslumati og greiðslumati í útibúi fyrir einstaklinga. Verðmunurinn á greiðslumati fyrir hjón eða sambúðarfólk eftir því hvort farið er í útibú eða greiðslumatið er framkvæmt rafrænt er yfir 5.000 hjá báðum bönkunum. Farðu í þinn banka í greiðslumat, allir bankarnir rukka mun hærra gjald fyrir greiðslumat ef þú ert ekki viðskiptavinur.
Enginn verðmunur er á rafrænu greiðslumati eða greiðslumati í útibúi hjá Landsbankanum.

Tilkynning með tölvupósti og innskráning með pin númeri getur kostað sitt
Ef þú ert hjá Íslandsbanka borgar þú 205 kr. fyrir hverja senda kvittun með tölvupósti eftir millifærslu í netbanka eða appi. Þá kostar hver innskráning í netbanka eða appi 10. kr. Sparaðu þér þennan kostnað ef þú mögulega getur með því að sleppa kvittuninni eða fá hana senda með sms-i sem kostar 10 kr. og skráðu þig inn í netbankann með rafrænum skilríkjum eða notendanafni og lykilorði.

 

Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir