Síðan um miðjan vetur hafa vínilvinir hist mánaðarlega hjá Þórarni Hannessyni í Ljóðasetrinu til að hlusta á LP plötur, spjalla um tónlist og drekka kaffi.

Þetta hafa verið hinar bestu samkomur að mati þátttakanda sem allir eru, með einni undantekningu, á langbesta aldri og flestir lifað og hrærst í tónlistinni í áratugi, eða eins og Kalli Guðmunds orðaði það eftir síðasta fundinn “þessir gestir eru með þekkingu á við þrjú elliheimili”.

Á fyrsta fundi vínilvina

Síðasti fundurinn þetta vorið var einmitt haldinn heima hjá Kalla og þar er ekki í kot vísað með græjurnar. Sérmagnari fyrir vínil o.s. frv. Allt í fullri alvöru þar.

Nú er hópurinn kominn í stutt sumarfrí og svo verður þráðurinn tekinn upp að nýju strax og haustar.

þessir eru með þekkingu á við þrjú elliheimili

Texti og myndir: Björn Valdimarsson
Björn heldur úti heimasíðu með ljósmyndum sínum sem vert er að skoða.  Sjá hér