Fyrir fimm árum síðan, eða 1. maí 2018 fór fréttavefurinn Trölli.is í loftið. Forsvarsmenn eru Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason.

Vefurinn er alhliða frétta-, upplýsinga- og auglýsingavefur fyrir svæðið frá Húnaþingi vestra og austur í utanverðan Eyjafjörð.

Skrifaðar hafa verið 9.152 fréttir og greinar síðastliðin fimm ár.

Gunnar Smári hefur rekið útvarpstöðina FM Trölla undanfarin fjórtán ár, sem er með senda í Hrísey, sem sendir út í utanverðum Eyjafirði, Ólafsfirði, Siglufirði, Skagafirði og Hvammstanga, og vinnur vel með fréttavefnum.

Auk þess vinnur Gunnar Smári við hljóðvinnslu, hljóðupptökur, forritun, nýsköpun og rafeindasmíði, Kristín Magnea sér um fréttavefinn og allt utanumhald þar að lútandi.

Trölli.is þakkar lesendum og auglýsendum fyrir samstarfið þessi ár, og vonar að næstu árin verði ekki síður farsæl.

Forsvarsmenn Trölla.is þakka einnig þeim fjölmörgu sem lagt hafa vefnum lið með skrifum og fréttaábendingum.

Myndin í frétt af þeim hjónum var forsíðumynd fréttar um vefinn 1. maí 2018.