Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands
Frestur til að tilnefna til Hvatningarverðlauna ÖBÍ hefur verið framlengdur til laugardagsins 22. september. Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks. Verðlaunin eiga að efla frumkvæði til nýrra verkefna og hugmyndavinnu í málaflokknum og skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk. Þau eiga að vera hvatning til að gera enn betur til innleiðingar á samfélagi sem endurspeglar einkunnarorð ÖBÍ, eitt samfélag fyrir alla. Verðlaunin eru veitt ár hvert á alþjóðadegi fatlaðra 3. desember og voru fyrst veitt árið 2007. Forseti Íslands, Hr. Guðni Th....
Lesa meira