- Bjössi Bó og Björn Helgi Ingimarsson mættust í úrslitum þar sem Björn Helgi fór með sigur af hólmi.
- Sigurjón Sigurðsson og Björn Guðmundsson mættust í úrslitum Forsetans, þar sem Sigurjón fór með sigur af hólmi og átti jafnframt hæsta útskot kvöldsins, 119.
Pílufélag Siglufjarðar stóð fyrir vel heppnuðu pílumóti á föstudaginn langa þar sem keppt var í tveimur flokkum, annars vegar 18 ára og eldri og hins vegar U18. Mótið var opið öllum áhugasömum og mæting góð, alls tóku 40 keppendur þátt, þar af 20 í hvorum flokki. Ljóst er að áhugi á pílukasti fer vaxandi í Fjallabyggð.
Björn Helgi vann eftir spennandi viðureign
Í flokki 18 ára og eldri mættust í úrslitum Björn Helgi Ingimarsson, aðeins 15 ára gamall, og Bjössi Bó. Björn Helgi, sem kemur úr Pílufélagi Fjallabyggðar, stóð uppi sem sigurvegari eftir spennandi viðureign. Hann hlaut að launum gjafabréf frá Siglósport og gjafabréf á þriggja stjörnu hótel hjá KEA.
Skipuleggjendur mótsins leyfðu tveimur 15 ára keppendum að taka þátt í þessum flokki vegna hæfileika þeirra, og sýndi Björn Helgi svo sannarlega að sú ákvörðun var rétt. Bjössi Bó hafnaði í öðru sæti og fékk í verðlaun pílur frá Peelan auk gjafabréfs á fish and chips hjá Fiskbúð Fjallabyggðar.
Forseti mótsins réðst í spennandi úrslitum
Í svokölluðum „Forseta“, þar sem keppendur í 3. og 4. sæti riðla keppa áfram, mættust Sigurjón Sigurðsson og Björn Guðmundsson í úrslitum. Sigurjón hafði betur og hlaut gjafabréf frá Ástþóri Árnasyni og fimm skipti hjá Hopp. Þá átti hann einnig hæsta útskot kvöldsins, 119, og fékk fyrir það pílur frá Peelan. Björn Guðmundsson fékk pílur frá Peelan fyrir annað sætið.
Spennandi keppni í yngri flokkum
- Haraldur Hjaltason og Gunnar Helgi Björnsson mættust í úrslitum U18 flokks, þar sem Gunnar Helgi fór með sigur af hólmi.
- Nökkvi Marteinsson og Heiðdís Hjaltadóttir mættust í úrslitum Forseta U18 flokks, þar sem Nökkvi fór með sigur af hólmi.
Gunnar Helgi sigraði í U18 flokki
Í U18 flokki var það Gunnar Helgi Björnsson sem sigraði eftir úrslitaleik gegn Haraldi Hjaltasyni. Gunnar Helgi hlaut gjafabréf frá Pizzabakaranum og Siglósporti auk páskaeggs frá félaginu. Haraldur fékk gjafabréf á fish and chips hjá Fiskbúð Fjallabyggðar og lítið páskaegg.
Sigur hjá Nökkva í Forseta U18
Í Forseta U18 flokknum mættust Nökkvi Marteinsson og Heiðdís Hjaltadóttir. Nökkvi sigraði og fékk gjafabréf frá Aðalbakaríinu og páskaegg, en Heiðdís hlaut kippu af Pepsi frá Kjörbúðinni auk lítils páskaeggs.
Allir þátttakendur fengu litla súkkulaðikanínu að gjöf frá félaginu. Þá stóð öllum einnig til boða að þiggja jólaöl frá Kjörbúðinni, sem sumir nýttu sér.
Myndir frá mótinu tók María Elín Sigurbjörnsdóttir, betur þekkt sem Ella Maja, en myndir af U18 keppendum tók Ragnheiður Steina Róbertsdóttir, einnig þekkt sem Steina Róberts.
Tengt efni:
Pílufélag Siglufjarðar boðar til pílumóts á föstudaginn langa
































