Síldarminjasafnið á Siglufirði hefur undanfarið verið afar virkt á samfélagsmiðlum og birt röð skemmtilegra myndbanda undir yfirskriftinni Á bak við tjöldin hjá Síldó. Þar fá áhorfendur innsýn í lífið og stemninguna á bak við tjöldin hjá safninu, þar sem gleðin fær að njóta sín.

Á bak við tjöldin hjá „Síldó“ vekur athygli á samfélagsmiðlum

Daníel Pétur Daníelsson, lengst til hægri, í hlutverki sínu í leikritinu Með vífið í lúkunum hjá Leikfélagi Fjallabyggðar.
Mynd: Facebook / Leikfélag Fjallabyggðar

Einn þeirra sem fer fremstur í flokki í myndböndunum er Daníel Pétur Daníelsson, sem virðist hafa töluverða leikarahæfileika. Hann er jafnframt með hlutverk í nýjasta leikriti Leikfélags Fjallabyggðar, Með vífið í lúkunum, þar sem hann fær einnig að láta ljós sitt skína á sviðinu.

Myndböndin hafa fengið góð viðbrögð og er ljóst að gestir og fylgjendur safnsins kunna vel að meta léttleikann og sprellið sem starfsfólkið býður upp á. Með þessu hefur Síldarminjasafnið fundið skemmtilega leið til að tengjast fólki og gefa innsýn í líflega og fjölbreytta starfsemi safnsins.

Það sem gerir þessi myndbönd enn skemmtilegri er að í lok þeirra birtast svokölluð „bloopers“, þar sem allt fer ekki alveg samkvæmt handriti.

Sjón er sögu ríkari

Opnunartími um páskana

Að lokum fylgir hér páskaopnunartími Síldarminjasafnsins og Síldarkaffis.

Myndir: Skjáskot úr myndböndunum.