Starfsaðstæður og skipulag í Leikskóla Fjallabyggðar voru til umfjöllunar á fundi Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar sem haldinn var í Ráðhúsi Fjallabyggðar þann 23. mars 2026. Leikskólastjóri sat fundinn þar sem kynntar voru niðurstöður könnunar sem gerð var í kjölfar breytinga á opnunartíma og gjaldskrá leikskólans.
Niðurstöður könnunar lagðar fram
Við breytingarnar var gert ráð fyrir að kanna viðhorf foreldra, starfsfólks og atvinnulífs. Starfshópur fól Ásgarði framkvæmd könnunarinnar og bárust svör frá 88 foreldrum, 40 starfsmönnum og fimm fyrirtækjum eða stofnunum.
Foreldrar kalla eftir meiri sveigjanleika
Niðurstöður foreldrakönnunar sýna að tæplega helmingur svarenda telur að föstudagslokun hafi haft talsverð neikvæð áhrif á vinnu og afkomu. Um 39 prósent telja skráningadaga henta vel, en 26 prósent eru sátt við fyrirkomulagið þó þeim finnist það of kostnaðarsamt.
Þegar litið er til sex tíma vistunar segir meirihluti foreldra að vinnutími þeirra leyfi slíkt fyrirkomulag ekki og að tekjutap geti verið meira en sá sparnaður sem fæst. Þá höfðu tæp 41 prósent ekki kynnt sér rétt til tekjuafsláttar og tæp 50 prósent töldu sig ekki eiga rétt á slíkum afslætti.
Samantekið má segja að foreldrar kalli eftir lengri opnun á föstudögum, auknum sveigjanleika í sex tíma vistun og endurskoðun á kostnaði við skráningardaga. Á móti kemur að fram kom að núverandi fyrirkomulag hafi einnig haft jákvæð áhrif, meðal annars með bættri mönnun og auknum stöðugleika í starfseminni.
Atvinnulífið finnur fyrir áhrifum breytinga
Svör atvinnulífsins benda til þess að styttri opnun á föstudögum og skráningadagar hafi aukið fjarveru starfsfólks frá vinnu. Helmingur svarenda segir þó að áhrifin á dagleg störf séu aðeins smávægileg, en 67 prósent telja föstudagsopnun henta illa. Þrátt fyrir það telja 60 prósent að núverandi kerfi henti betur en áður, á meðan 40 prósent vilja meiri sveigjanleika og jafnari opnun.
Starfsfólk lýsir aukinni ánægju
Niðurstöður frá starfsfólki leikskólans eru afgerandi. Yfirgnæfandi meirihluti segist ánægður með breytingarnar og telur vinnuálag hafa minnkað. Nær allir telja föstudagslokun vera til bóta og hún nýtist meðal annars til styttingar vinnuvikunnar. Starfsfólk telur sig betur í stakk búið til að takast á við veikindi og forföll og að samheldni hafi aukist. Þá hafi skráningadagar og lokun milli jóla og nýárs reynst vel til frítöku.
Jafnframt kemur fram að breytingarnar hafi skilað minni streitu, betri mönnun og auknu faglegu starfi, þrátt fyrir að enn sé þörf á auknu svigrúmi til faglegs undirbúnings. Börnunum líði almennt betur og meiri ró ríki í leikskólanum.
Lagt til að 30 tíma vistun verði gjaldfrjáls
Með hliðsjón af niðurstöðunum hefur leikskólastjóri lagt fram tillögur um að 30 tíma vistun verði gjaldfrjáls og að fullt gjald verði greitt fyrir alla vistun umfram þann tíma. Einnig er lagt til að gera 30 tíma vistun sveigjanlegri yfir vikuna, en að áfram verði lokað klukkan 14 á föstudögum.
Fram kemur að leikskólinn muni funda með foreldarráði síðar í vikunni þar sem niðurstöður könnunarinnar og mögulegar breytingar verða ræddar frekar.
Mynd úr safni Trölla.is





