Eduard og Tinna sigruðu í páskaparamóti Blakfélags Fjallabyggðar

Páskaparamót Blakfélags Fjallabyggðar fór fram í dag, föstudaginn langa, og var vel sótt. Alls tóku 18 pör þátt og ríkti mikil stemmning í keppninni þar sem leikgleði og góð samkeppni fóru saman.

Keppnin var jöfn og spennandi, en að lokum stóðu þau uppi sem sigurvegarar Eduard Constantin Bord og Tinna Sif Arnarsdóttir sem hlutu fullt hús stiga, 120 stig. Í öðru sæti með 116 stig urðu Jakob Auðunn Sindrason og Bryndís Þorsteinsdóttir, en skammt undan í þriðja sæti með 115 stig lentu Vítor Vielra Thomas og Alma Jenný Arnarsdóttir.

Eduard og Tinna sigruðu í páskaparamóti Blakfélags Fjallabyggðar

Aðstandendur mótsins vilja koma á framfæri þökkum til styrktaraðila, Seguls 67, KEA Hótela og Siglóveitinga, fyrir stuðninginn sem gerði mótið mögulegt.

Myndir: Facebook / Blakfélag Fjallabyggðar