Fram undan eru páskarnir og útlit er fyrir líflega daga í Fjallabyggð þar sem fjölbreytt afþreying verður í boði, meðal annars á skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði. Undanfarna daga hefur þó verið mikið álag á starfsfólki svæðisins vegna óvenju mikils snjómagns.
Birgir Egilsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, segir að töluverð vinna hafi farið í að moka snjó af húsum og svæðinu sjálfu síðustu daga.
„Það gengur ágætlega hjá okkur, en það hefur bæst við gífurlegt magn af snjó og við höfum haft í nógu að snúast við að moka og vinna hann. Ég er þó nokkuð bjartsýnn á að við náum að opna fyrir páskana, ef veðrið verður okkur hliðhollt.“
Segir Birgir í samtali við trolli.is.
Aðspurður hvort þetta sé eitt af erfiðari verkefnum sem hann hafi staðið frammi fyrir sem forstöðumaður segir hann svo vera.
„Verkefnin hér eru af ýmsum toga og reyna bæði á andlegt og líkamlegt þol. Þetta er þó sennilega eitt af erfiðari verkefnunum sem við höfum þurft að takast á við, einkum vegna snjómagnsins og óstöðugs veðurs. Við höfum lítið fengið af almennilegu vinnuveðri til að vinna niður þann snjó sem safnast hefur upp,“
segir hann.
Hann bætir við að tímapressan sé til staðar þar sem páskar nálgist hratt og því þurfi bæði dugnað og jákvætt hugarfar til að takast á við verkefnið.
„Páskarnir nálgast hratt þannig að það þarf að hafa hraðar og duglegar hendur, og auðvitað gott skap með í för. Það verður allavega ekki skortur á snjó hér á næstunni, sem gleður eflaust marga útivistarmenn.“
Tengt efni:
Páskarnir í Fjallabyggð: Fjölbreytt dagskrá og líflegt bæjarlíf fram undan
Myndir: úr einkasafni


















