Síldarkaffi var þéttsetið á þriðjudagskvöld þegar kokkar sumarsins, þeir Elias Johansson og Ted Karlberg frá Karlskrona í Svíþjóð, buðu upp á sex rétta kvöldverð sem vakti mikla lukku meðal gesta.

Fyrir Elias var þetta fyrsta heimsóknin til Siglufjarðar. Hann lagði áherslu á að kynnast bæði staðnum og fólkinu, en jafnframt að kynna eigin matseld fyrir heimafólki og gestum. Fram undan er annasamt sumar hjá honum, en Elias mun sjá um matseldina á Síldarkaffi á komandi tímabili.

Ted Karlberg er hins vegar orðinn vel kunnugur á Siglufirði, en hann hefur heimsótt bæinn reglulega frá árinu 2018. Hann hefur á þeim tíma tekið þátt í uppbyggingu og þróun Síldarkaffis og átt sinn þátt í að móta þá sérstöðu sem staðurinn hefur skapað sér.

Matseðill kvöldsins var í skandinavískum anda þar sem síld, sjávarfang og lambakjöt voru í forgrunni. Samspil hráefna og útfærsla rétta skilaði eftirminnilegri upplifun fyrir gesti.

Tengt efni

Elias Johansson stýrir eldhúsinu á Síldarkaffi í sumar og býður til kvöldverðar þriðjudaginn 31. mars

Myndir: Facebook / Síldarkaffi.